Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Merkingar matvæla
Frá: 04 febrúar 2010 18:00
 Til: 04 febrúar 2010 21:00


Merkingar matvæla - Þessum upplýsingum átt þú rétt á!

Fimmtudaginn 4. febrúar kl. 18-21 mun MNÍ (Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ)) ásamt Matís og MAST í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands halda námskeið um merkingar matvæla m.a. til að auka skilning á merkingum og á innihaldi matvæla.

Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa á merkingum matvæla og hentar einnig þeim sem nota þær í störfum sínum, s.s. í mötuneytum, framleiðslu- og innflutningsfyrirtækjum. Markmið með námskeiðinu er að gera þátttakendur færa um að túlka merkingar matvæla og veita þeim skilning á innihaldi þeirra.

Titill    
Þessum upplýsingum átt þú rétt á! 
    
Merkingar á matvælum eru oft einu upplýsingarnar sem við höfum í höndunum til þess að velja matinn okkar  á upplýstan hátt. Merkingarnar þurfa að fylgja ákveðnum reglum, sem segja til um hvað þarf að koma fram. Þær eiga að vera skýrar og ekki villa um fyrir okkur.  Innihaldslýsing og næringargildisupplýsingar eru mikilvægar til þess að geta borið saman innihaldsefni, orkuinnihald og bætiefni matvæla og kunna að vera forsenda þess að við getum sett saman heilsusamlegt mataræði.

Markhópur    
Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa á merkingum matvæla, en hentar einnig þeim sem nota þær í störfum sínum, s.s. í mötuneytum, framleiðslu- og innflutningsfyrirtækjum.

Samstarf    
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ)

Dagur og tími    
4. febrúar 2010, kl 18:00 – 21:00

Kennsla / Umsjón    
Jónína Þ. Stefánsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun (MAST)
Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís ohf.
Gunnþórunn Einarsdóttir, matvælafræðingur hjá Matís ohf.

Lýsing    
Markmið með námskeiðinu er að gera þátttakendur færa um að túlka merkingar matvæla og veita þeim skilning á innihaldi þeirra.

Farið verður yfir gildandi reglur um merkingar matvæla eins og þær snúa að neytendum, merkingar á umbúðum matvæla verða skoðaðar og komið verður inná hvernig á að merkja ofnæmis- og óþolsvalda. Gerð verður grein fyrir hinum ýmsu merkjum á matvælum: hollustumerki, glas- og gaffalmerkið, lífræn vottunarmerki, Fair Trade o.fl. Skýrt verður hvernig merkingar á innihaldi, næringargildi og geymsluþoli eru unnar. Tekin verða dæmi um vinnslu merkinga og þátttakendur vinna verkefni. Sýnd verður notkun á íslenska gagnagunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) og vefforritinu hvaderimatnum.is, auk fleiri forrita og aðferða við útreikninga. Umræður eru hluti námskeiðsins.   
   
Nánari upplýsingar hér

Sjá einnig Aflsáttartilboð Endurmenntunar til félagsmanna MNÍ vor 2010


ATBURÐIR | Dagatal
Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: