Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf
Frá: 09 febrúar 2010 14:30
 Til: 09 febrúar 2010 16:30


Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30  í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður síðar endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma.

Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1. mars. n.k. Sérkröfur til búfjárafurða taka gildi 1. nóvember 2011. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en skv. skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr. 143/2009) er matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eða ekki, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.

Dagskrá:

    * Af hverju ný matvælalöggjöf?  
    * Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
    * Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?

Fulltrúar frá Matvælastofnun annast kynningu og verður boðið upp á umræðu að henni lokinni. Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og mun Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýra fundinum.

Samskonar kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki verður haldinn á Akureyri þann 22. febrúar kl.14:30 – 16.30 og mun sá fundur vera auglýstur síðar.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka[at]si.is. Taka skal fram á hvaða fund þið hyggist koma.

Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér matvælalöggjöfina á vef MAST.  

Ítarefni:
Upplýsingar um matvælalöggjöfina á heimasíðu Matvælastofnunar


Tekið af heimasíðu Matvælastofnunnar


ATBURÐIR | Dagatal
Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: