Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Vorferð MNÍ

Miðvikudaginn 26.maí 2010 stóð MNÍ fyrir vorferð fyrir félagsmenn upp í Hvalfjörð.  Förinni var heitið að bæjunum Hálsi og Neðri-Hálsi í Kjós þar sem ábúendur tóku á móti okkur og kynntu þá starfsemi sem fer fram á þessum tveimur bæjum.
 
Konur, menn, börn og hundar hittust í blíðskapar veðri á Hálsi seinnipart dags og hófst ferðin með heimsókn að Neðri Hálsi þar sem ábúendur þar á bæ hjónin Kristján Oddsson og Dóra Ruf tóku á móti okkur.  Kristján fræddi hópinn stuttlega um hvað lífræn framleiðsla á mjólk felur í sér og svo fékk hópurinn leiðsögn um fjósið.  Skoðunarferðinni á Neðri Hálsi lauk í garðinum heima við bæ þar sem gestgjafarnir buðu hópnum að smakka á hinum ýmsu vörum sem þau framleiða úr lífrænni mjólk undir vörumerkinu Bíóbú (www.biobu.is).

Frá Neðri Hálsi gengum við yfir hlaðið að Hálsi þar sem Þórarinn Jónsson bóndi og kona hans Lisa Sascha Boije tóku á móti okkur og fræddu okkur um starfsemina á Hálsi.  Á Hálsi er framleitt nautakjöt af holdagripum sem síðan er selt beint frá býli í versluninni Matarbúrið sem rekin er á Hálsi.  Í Matarbúrinu er auk þess selt fjölbreytt úrval afurða úr nautakjöti s.s. bratwurst pylsur, reyktur nautavöðvi og beef jerky allt unnið í kjötvinnslunni á Hálsi ásamt ýmsu öðru.  Frekari upplýsingar um starf bændanna á Hálsi og verslunina Matarbúrið má finna á www.hals.is.

Þegar félagsmenn höfðu nánast keypt upp lagerinn í Matarbúrinu þá var gengið niður að Maríuhöfn á Búðarsandi(http://www.kjos.is/frodleikur-ur-kjos/) sem er í landi Háls.  Þar kom hópurinn sér vel fyrir á meðan Pétur, Grímur og Trausti grilluðu hamborgara frá Hálsi af mikilli list.  Þegar hópurinn hafði borðað nægju sína og notið umhverfisins um stund var svo haldið heim á leið eftir afar vel heppnaða ferð í Kjósina.

Rúmlega 30 manns mættu í ferðina þakkar stjórn MNÍ þeim Ágústu Gísladóttur, Pétri Helgasyni og Grími Ólafssyni sem skipulögðu og komu að framkvæmd ferðarinnar ásamt Herdísi formanni sérstaklega fyrir þeirra framlag.

Myndir úr ferðinni
(teknar af Sigríði Ástu Guðjónsdóttur)

Myndband úr ferðinni (tekið af Pétri Helgasyni)




ATBURÐIR | Dagatal
Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: