Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Nýjar reglur um næringar- og heilsufullyrðingar

Ný reglugerð um næringar- og heilsufullyrðingar nr. 406/2010 tók gildi á Íslandi í apríl sl. Á sama tíma féll úr gildi IV. kafli reglugerðar nr. 588/1993 um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla.

Við útgáfu nýrrar reglugerðar um næringar- og heilsufullyrðingar, féllu áður útgefin leyfi til notkunar fullyrðinga úr gildi og ekki verður heilmilt að nota fullyrðingar í merkingu matvæla nema þær uppfylli skilyrðin sem sett eru í nýju reglugerðinni.

Til að tryggja samræmt, vísindalegt mat á fullyrðingunum mun Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) meta fullyrðingarnar en framkvæmdastjórn Evrópu-sambandsins tekur endanlega ákvörðun um hvort leyfa eigi notkun þeirra eða ekki. Það er því ekki lengur í höndum Matvælastofnunar að veita heimild til notkunar fullyrðinga.

Sjá nánar
Reglugerð nr. 406/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1924/2006
um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli


Upplýsingar um nýju fullyrðingareglugerðina


Tekið af heimasíðu Matvælastofnunnar



ATBURÐIR | Dagatal
Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: