Íþróttir og útivistÍþróttanefnd heldur okkur á hreyfingu með því að skipuleggja útivistarferðir. Hér eru myndir úr gönguferð á Vörðuskeggja.SkógræktMNÍ var úthlutað landi í Heiðmörk árið 1995. Á hverju ári hafa félagsmenn farið í skógræktarferð, plantað trjám, grillað og haft gaman af.LeiðarlýsingReiturinn okkar er á svæði sem kallast Löngubrekkur. Ef ekið er inní Heiðmörk Rauðhólamegin er ekið eins og leið liggur eftir Heiðarvegi þar til komið er að Hjallabraut (ca. 1,6 km frá brú). Ekið eftir Hjallabraut og þegar komið er að vegamótum Hjallabrautar og Strípsvegar er ekið áfram um 400 metra og þar beygt inn á afleggjara á vinstri hönd. Eins og stendur er ekkert við veginn sem vekur athygli á þessum slóða en úr því verður vonandi bætt síðar. Haldið áfram eftir slóðanum eins langt og menn eða bílar komast. Ef komið er inn í Heiðmörk Vífilsstaðamegin er ekið eftir Hlíðarvegi og eru alls um 6,4 km frá hliði að afleggjaranum "okkar". Á þeirri leið er m.a. keyrt fram hjá Hjalladal þ.s. tjaldstæði er og þaðan eru um 2 km í afleggjarann.
Föstudaginn 10. september nk. fer fram doktorsvörn við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Gholam Reza Shaviklo matvælafræðingur doktorsritgerð sína "Properties and applications of fish proteins ...