Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Fjöreggið 2006

Guðrún Adólfsdóttir hlaut Fjöreggið 2006 fyrir námskeiðin Borðum betur sem vakið hafa verðskuldaða athygli, en Fjöregg MNÍ er veitt fyrir lofsvert framtak á matvælasviði.

Í upphafi matvæladags MNÍ var Fjöreggið afhent fyrir lofsvert framtak á matvælasviði. Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins talaði fyrir hönd dómnefndar og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvaegráðherra afhenti að því búnu Guðrúnu Fjöreggið.

Borðum betur eru námskeið sem Guðrún Adólfsdóttir hefur annast og hafa vakið verðskuldaða athygli.

Guðrún er B.S. matvælafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún hóf störf hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni árið 2000 og hefur starfað þar síðan við ráðgjöf og fræðslu.

Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður dómnefndar sagði m.a. við afhendingu Fjöreggsins, sem gefið er af Samtökum iðnaðarins:

"Það leynir sér ekki að Guðrún hefur mjög mikinn áhuga á mat og matarmenningu hverskonar. Hún heldur námskeið, bæði fyrir starfsfólk mötuneyta og starfsmenn fyrirtækja og stofnana. Námskeiðin kallar hún Borðum betur og eru haldin fyrir fyrirtæki og stofnanir. Á námskeiðunum leggur hún áherslu á breytt hugarfar, nýjar venjur og spennandi eldamennsku.  Henni tekst vel að vekja áhuga fólks á fjölbreyttum, bragðgóðum og hollum mat á öfgalausan hátt.

Aðferðafræði Guðrúnar er til þess fallin að skila okkur árangri, vekja okkur til umhugsunar um það sem við borðum, gæta hófs og fjölbreyttni og stuðla þannig að bættri lýðheilsu."

Ávarp Jóns Steindórs við afhendinguna má finna hér.




ATBURÐIR | Dagatal
Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: